Wednesday, June 06, 2007

Vonbrigði, enn og aftur !

Nýkominn heim frá London með þjónustulund þarlendra í fersku minni hef ég að gamni borið saman framkomu veitingamanna hér á landi og þar. Samanburðurinn er í mörgum tilfellum ekki svo óhagstæður Íslendingunum með tveimur leiðum undantekningum þó.
Við Laugaveginn standa tvö veitingahús gengt hvort öðru og hafa þau bæði verið vinsæl frá opnun. Báðir staðirnir eru reknir af upprunalegu eigendunum, í.þ.m. að hluta og á báðum stöðunum vinnur fólk sem tengist eigendunum eða fjölskyldum þeirra. Á Asíu er nær alltaf ófaglært fólk í framreiðslu en kemur e.t.v. minna að sök á þeim stað þar sem flestir gestirnir eru að skjótast í súpu í hádeginu eða þá að verið er að færibandaafgreiða stóra túristahópa með sameiginlegan matseðil. Helst er að maður finni fyrir sauðshættinum í sjálfri móttökunni sem oft er áhugalaus og klaufsk.

En það er handan við götuna, á veitingastaðnum Ítalíu, sem maður kemst virkilega í návígi við þjónustu sem er svo slæm að það sætir furðu að fólk skuli yfirhöfuð sækja þennan stað heim aftur og aftur. Undirritaður var fastagestur á Ítalíu árum saman en hætti að eiga viðskipti við staðinn þegar ráðinn var strákhvolpur sem yfirþjónn, svo ruddalegur og góður með sig að engin leið var að eiga við hann samtal. Þegar hann hafði látið 6 manna fjölskyldu sitja á strætóbekk utandyra í bið eftir borði frekar en að leyfa fólkinu að setjast í 20 mínútur í setukrók á efri hæð þótti mér nóg komið í bili. Nokkru seinna fréttist að hrokagikkurinn hafði verið látinn fara og því var farið að sækja staðinn á ný. Einn faglærður framreiðslumaður er á hverri vakt að jafnaði en fyllt uppí með ómenntuðum stelpum sem margar eru ágætar og sinna sínu starfi af alúð og einlægni, eins og reyndar flestir á þessum veitingastað. Glaðlegt viðmót og þjónustulund getur tryggt vel heppnaða heimsókn á veitingastað ekkert síður en yfirspennt fagmennska og fjöldi prófskírteina. En Adam var ekki lengi í Paradís og nú hefur enn verið ráðinn til starfa strákur sem heldur að hroki og ruddalegt viðmót við gestina sé vænlegast til árangurs. Það er alveg magnað hvað einn asni getur eyðilagt mikið fyrir öðrum. Setningar eins og; “ég hef ekki tíma til að tala um þetta við þig, ég er að vinna hérna” og “eigandinn vill ekkert láta trufla sig í sínu fríi, þú verður bara að hringja í hann á morgun” eru ekki til þess fallnar að láta manni finnast maður skipta máli sem kúnni. Miklu frekar að maður hafi á tilfinningunni að maður eigi bara að éta það sem úti frýs. Stundum gerist það sjálfsagt þegar ungir menn eru að reyna að sanna sig fyrir yfirmönnum sínum að þeir fari offari og segi hluti sem betur hefðu verið ósagðir. En að þeir haldi ruddaskapnum áfram þegar þeir hafa verið áminntir og farið fram á það að þeir sýni almenna kurteisi er ófyrirgefanlegt og veitingamaður með slíkan mann í vinnu þarf virkilega að hugsa sig um.
Tvær ungar stúlkur héldu uppá afmæli þeirrar eldri nú á vordögum og fengu leyfi foreldranna til að “fara út að borða”. Haft var samband við Ítalíu, gengið frá bókun og móttökum. Allt gekk þetta vel og ánægjan með heimsóknina slík að þegar sú yngri átti afmæli var ákveðið að endurtaka leikinn. Hvorki þær né foreldrarnir vissu að í millitíðinni hafði nýr hrokagikkur með útsprungið egó verið ráðinn til starfa á staðnum og engu tauti við hann komandi að taka frá borð fyrir stúlkurnar hvað þá að hleypa þeim inná staðinn yfirhöfuð. “Það er reyndar bannað með lögum að afgreiða 14 ára börn á stöðum með vínveitingaleifi, án þess að vera í fylgd með fullorðnum!!!” Nú ! Og ég sem hef alltaf haldið að það mætti bara ekki selja þeim vín. Undarlegt þá að þessar sömu ungu dömur skyldu fá þessa fínu afgreiðslu í fyrri heimsókninni, ekki hafa lögin breyst á þeim 6 vikum sem liðnar eru síðan. Nei það eina sem gerst hefur í millitíðinni er að eigendur Ítalíu hafa enn og aftur gert þau reginmistök að ráða bjána í vinnu og halda að með því séu þau að spara einhverja þá peninga sem kostar að ráða alvöru fagmann. Þau spara allavega peningana sem geymdir eru í mínu veski því á Ítalíu fer ég ekki aftur og enginn úr minni fjölskyldu fyrr en ráðið hefur verið starfsfólk, til að ganga um beina, sem kann almenna kurteisi. Stúlkurnar halda svo bara uppá afmælið á Caruso, þar sem þær eru velkomnar, og veskin þeirra líka.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

úr 18. gr. áfengislaga:

Á veitingastað sem leyfi hefur til áfengisveitinga er ungmennum yngri en 18 ára óheimil dvöl eftir kl. 20 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með foreldrum sínum eða maka.

http://www.althingi.is/dba-bin/unds.pl?txti=/wwwtext/html/lagasofn/133a/1998075.html&leito=aldra%5C0aldrana%5C0aldranna%5C0aldrar%5C0aldrarnir%5C0aldri%5C0aldrinum%5C0aldur%5C0aldurinn%5C0aldurs%5C0aldursins%5C0%F6ldrum%5C0%F6ldrunum#word1

6/21/2007 7:52 PM  
Blogger Hjörtur Howser said...

Alltaf jafn lásí þegar menn geta ekki sett nöfn sín við skrif sín á netinu. Eitthvað svo "et tu Brute" við það.

En bestu þakkir fyrir tilvitnunina í áfengislögin, svosem engar fréttir að ungmenni megi ekki vera inná restauröntum eftir kl.20 nema í fylgd með fullorðnum. Eftir stendur þá spurningin um hvorn veitingastaðinn ætti að kæra til lögreglunnar, þann sem þjónustaði stúlkurnar í fyrra sinnið eða þann sem gerða það í hið síðara, eða kannski báða.... eða bara alla staðina sem hafa gerst sekir um svipaða greiðasemi undanfarna áratugi. En kannski býr "Anonymous" ekki í sama raunveruleika og við hin þar sem laganna bókstaf er ekki alltaf fylgt í smæstu smáatriðum.

Kannski hefði hann frekar viljað að stúlkurnar hlytu það veganesti út í lífið að þær væru alls ekki velkomnar í mat á tyllidögum, svona ungar, en mættu gjarnan koma skömmu síðar, þegar þær hafa náð aldri, og drekka sig þá blindfullar með tilheyrandi látum og scandal. Lífið snýst reyndar ekki eingöngu um alkóhól hjá öllum þó það geri það greinilega hjá sumum.

6/25/2007 12:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Anonymous ber reyndar heitið Vilhjálmur Árnason og finnst lögin full ströng að þessu leiti. Er reyndar ekki með reglur um útivistartíma á hreinu en finnst einfaldast að miða við hann, þ.e. ef fólk er nógu gamalt til að vera úti á einhverjum tíma hljóti það að vera nógu gamalt til að kaupa sér mat (hefði kannski mátt nefna það í fyrra sinnið til að fyrirbyggja miskilning).

6/25/2007 3:34 PM  
Blogger Hjörtur Howser said...

Ég er sammála þér með lögin, þau mætti endurskoða með tilliti til nútímanns og breyttra viðhorfa og siða í samfélaginu. Þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar, fanatísku templararnir sem eftir eru og áttu þátt í hafta-og fyrirhyggju offorsi síðustu kynslóðar.
Mun eðlilegra væri einmitt að miða við útivistartíma og treysta svo veitingamönnunum að vera ekki að bera áfengi í ungmennin.
Þakka commentin og áhuga þinn Vilhjámur.
Kv.
HH..

7/18/2007 4:55 PM  

Post a Comment

<< Home