Saturday, September 23, 2006

101 hótel

Þess er ekki langt að bíða að hér birtist rýni á Apótekið, en þangað til langar mig að fara nokkrum orðum um stað sem við heimsóttum eftir að máltíðinni lauk. Við kíktum inn á 101 hótel og ætluðum bara í einn "Irish", (fyrir svefninn)! Ekki málið "gjöriðisvovel" og allt það. Settumst við skemmtilegt útsýni innst í salnum (ég þurfti reyndar að standa aftur upp og fara á barinn til að panta). Eftir smástund komu drykkirnir og litu vel út í háum glösunum, þrjár kaffibaunir ofaná rjómanum. Lykta létt af og fá sér svo sopa... en viti menn... þá voru öll ljósin kveikt og rödd, með áberandi hreim, kallaði hátt og ákveðið: "nú'r búnn a loka!!!".

Ég á ekki orð.

Kannski hefði ég átt að hunskast til að hlýða þegar einn þjónninn skipaði mér að fara oní kjallara til að "klára" drykkinnn sem ég var ekki byrjaður á, en mér þótti það lítið spennandi.

Nei... ég fór bara út.

Á heimleiðinni fékk ég hinsvegar, góðan "Irish" eins og alltaf á Rósenberg .

Og fékk að klár'ann.......!

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

En þeir mega eiga það að þar færðu MSGið frítt.

9/23/2006 8:11 PM  
Blogger Ester Elíasdóttir said...

Úff. Er í ábyrgðarstöðu á 101 hotel. Finnst þetta frekar miður. Ætla að ræða við mitt fólk. Auðvitað á að benda fólki á, þegar það kemur rétt fyrir eitt, að staðurinn sé við það að loka. Það á líka að benda því á að í setustofunni (ekki kjallaranum) megi sitja í róleg- og huggulegheitum og ljúka sínum drykkjum. En leiðinlegt. Hvet þig samt til að prófa aftur.

9/29/2006 8:00 PM  
Blogger Hjörtur Howser said...

Já, þetta var mjög klaufalegt. Sérstaklega í ljósi þess að tekið var vel á móti okkur bæði við dyrnar og innar, við barinn.

Sá sem sem hugðist rýma salinn var ekki ókurteis, rétt að það komi fram, aðeins ópersónulegur og fjarlægur eins og honum kæmi ekkert við þetta fólk sem álpast hafði inn á veitingastaðinn. Og jú, klukkuna vantaði réttar tíu mínútur í eitt, rétt er það. Sá tími hefði þó dugað í þennan eina "night-cap".

Setustofuna bar ekki á góma, aðeins eitthvert lókal í kjallara, sem ég veit ekki meira um, en það hljómaði minna spennandi en setan við gluggann góða hafði gefið fyrirheit um.

Kannski prófa ég aftur, en verð þá trúlega ekki í fríi eins og ég var þetta umrædda kvöld.

Kv.
HH..

9/29/2006 9:21 PM  

Post a Comment

<< Home