Monday, July 21, 2008

Það var og !

Alltaf þykir mér skondið þegar spilltir stjórnmálamenn í spilltum flokkum benda á aðra og hafa áhyggjur af því að viðkomandi muni ekki geta sinnt verkefnum sínum af hlutleysi.

Fjármálaráðgjafi, sem hefur sýnt það á sínum ferli að honum er vel treystandi og hans ráð eru góð, sætir nú hælanarti frá smámennum í leyfunum af spilltasta hagsmunatengsla- og klíkupotaraflokki í sögu lýðveldisins. Stjórnmálaflokki sem hafði engan annan tilgang með tilvist sinni en að skara eld að köku sinna manna. Flokki sem var tilbúinn hvenær sem var og hvar sem var að selja sannfæringu sína hæstbjóðanda bara ef þeir mætti halda völdum, auðvitað til að geta áfram plantað lítt hæfum liðsmönnum sínum í vel launaðar áhrifastöður í kerfinu.

Kann þetta hyski ekki að skammast sín eða er það svo fullkomlega siðblint að það fyrrir sig allri ábyrgð á því hvernig komið er fyrir íslensku þjóðinni ?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home