Thursday, April 26, 2007

Tónleikar

Friday, April 20, 2007

Sviðin Jörð

Hljómsveitin Sviðin Jörð hefur sent frá sér tilkynningu sem er að finna á hlekknum "Sviðin Jörð" hér til hliðar. Eins má nálgast síðu þeirra félaga með því að smella á "HÉR".

Monday, April 09, 2007

"... og Dýrið varð heilt "

Það virðist engu breyta að íbúar Hafnarfjarðar hjuggu höfuðið af Dýrinu, samstundis spretta tvö önnur fram.

Nú á að ljúga ál-bræðslu oní kokið á Sunnlendingum með því að kalla fyrirbærið "Ál-tæknigarð". Svona lygar og falsanir voru nefndar "New-speak" í skáldsögunni og gjarnar reynt að láta orðin hafa öfuga merkingu við raunveruleikann sem þau táknuðu, svo er einnig nú.

Hitt höfuð Dýrsins mun að líkindum spretta fram á nesjum suður, í Helguvík, ef ekki tekst að ráða fyrirbærinu bana áður. Þessu brj-ál-æði verður að linna, Íslendingar verða að hveða niður þennan demon og þeim fáu sem einokað hafa öll völd á landinu í allt of mörg ár verður að koma frá ef ekki á illa að fara fyrir landi og þjóð á komandi árum.

Líkt og bændur Þjórsársveita biðluðu til Hafnfirðinga um liðsinni bið ég landsmenn alla að hafa græðgis-og umhverfishaturssjónarmið valdaklíkunnar í stjórnarráðinu ekki í öndvegi þegar gengið verður til kosninga í vor. Burtu með þessa klíku og norður og niður með allt það sem hún hefur logið að þjóðinni í meir en áratug.

Bylting er ekki matarboð....

Sunday, April 01, 2007

Viss léttir

Ég þakka þeim Hafnfirðingum sem breyttu rétt í þessu mikilvæga m-ál-i, kosningunni um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík.

Ég mun stoltur, hér eftir sem hingað til, kynna mig sem "Hafnfirðinginn" Hjört Howser og mun gera það beinn í baki.

Til hamingju Hafnfirðingar, bændur í sveitum austur og landsmenn allir með þennan mikilvæga áfanga á leið okkar til betra lífs.