Wednesday, October 22, 2008

Til hamingju !



Sannarlega hefði verið ástæða til að taka á móti þessu sómafólki og fagna medalíum þeirra líkt og þjóðin gladdist svo mjög yfir silfri handboltakappanna.

En partíið er búið og því mun glæsilegum árangri þeirra varla verða gerð þau skil sem hann verðskuldar. Það er miður því þessi prúði hópur hefur verið landi og þjóð til mikils sóma.

Ég vil segja innilega til hamingju með frábæran árangur og ég hlakka til að smakka það sem þið matreiðið á komandi mánuðum.

(meira um lansliðið hér)

Friday, October 10, 2008

Hver er hvað ?



The Good, The Bad and The Ugly....

On the road again....

En hver er hvað ?

Sunday, October 05, 2008

Tjara og fiður ?



Væri ekki tímabært og fyllilega maklegt ef þessi týrant yrði dreginn nauðugur út úr svörtuloftum, hýddur á Arnarhóli í viðurvist þjóðarinnar sem hann hefur kúgað áratugum saman og síðan tjargaður og fiðraður líkt og gert var við hans líka til forna?

Eftir það mætti flytja hann að borgarmörkunum og gera hann útlægan úr samfélaginu sem hann hefur fótum troðið allan sinn spillta valdaferil.

Þá fær lýðurinn kannski loksins séð að hann er nefnilega bara maður og ekki guð.